Ég vinn að verkefnum sem skipta máli fyrir samfélagið, náttúruna og líf okkar á jörðinni. Sem leiðtogi og verkefnastjóri sérhæfi ég mig í að taka flóknar hugmyndir og kerfi og koma þeim í framkvæmd.
Góð teymisvinna er mér mikilvæg. Ég legg áherslu á að virkja fólk, byggja upp sameiginlega sýn og skapa hvetjandi vinnuumhverfi þar sem ólíkir styrkleikar fá að njóta sín.
Uppbygging og stjórnun
Frá árinu 2022 hef ég byggt upp fræðslusetur um orku og innviði í Elliðaárstöð. Þangað hafa um 12.000 gestir sótt fræðslu, þar af um 1.000 kennarar.
Nýsköpun og teymisvinna
Ég verkefnastýrði fyrsta Nýsköpunarfestivali Veitna sem haldið var árið 2025. Í fimm hönnunarsprettum unnu 100 sérfræðingar úr ólíkum geirum að því að leysa raunverulegar áskoranir í veitu- og orkukerfum landsins.
Námsefni sem skiptir máli
Ég hef hannað og gefið út fjölbreytt fræðsluefni um vísindalæsi, orkulæsi, haflæsi, plast og úrgangsforvarnir. Meðal útgefenda eru Orkuveitan, Norden i skolen, MMS og Landvernd.
Samskipti og miðlun
Ég er reyndur ræðumaður og vinnustofuleiðtogi og hef mikla reynslu af samskiptum og kynningum fyrir ólíka hópa, – allt frá sérfræðingum til leikskólabarna.
Mínir styrkleikar
Skýr verkefnastjórn
Ég held utan um flókin verkefni alla leið, frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar afurðar.
Teymisvinna og leiðtogafærni
Ég legg mikið upp úr að virkja ólíka hópa, draga fram það besta í fólki og ná árangri saman.
Skýr miðlun
Ég geri flókin vísindi, umhverfismál, orku og innviði aðgengileg og skiljanleg öllum.
Ég er alltaf opin fyrir nýjum áskorunum, stefnumótun, ráðgjöf og verkefnum sem skipta máli.
Langar þig að vinna saman? Sendu mér línu!
This is your chance to emphasize why the visitor should contact you right now.